Námskeið, skólar, ljósmæður og verslanir fyrir litla fólkið
Staðir fyrir fjölskyldur með ung börn, frá meðgöngu þar til barnið verður fjögurra ára. Síaðu eftir aldri, degi og póstnúmeri og bókaðu á síðu staðarins.
check_circleVagga hefur farið yfir hvern stað hér: að hann sé til og að hlekkirnir vísi á hans eigin síðu.
check_circleLjósmæður og heilsuþjónusta: við athugum starfsleyfið í starfsleyfaskrá heilbrigðisstarfsmanna.
check_circleSkráning er ókeypis og enginn staður borgar fyrir betra sæti.
Finna stað
19 staðir
Sigma heilsa
Ljósmóðir eða heilsuþjónusta · Urriðaholtsstræti 22, 210 Garðabær
verifiedYfirfarið af Vöggu
Með þeirra eigin orðum
Sjúkraþjálfun og osteópatía fyrir konur á meðgöngu og eftir fæðingu, í Urriðaholti í Garðabæ. Ólafía Helga Jónasdóttir sjúkraþjálfari vinnur einnig innvortis. Unnar Már Unnarsson osteópati vinnur mikið með grindarsvæðið, eingöngu útvortis. Hægt er að panta tíma hjá Ólafíu í síma 583 5550 kl. 8–16 virka daga og hjá Unnari á osteo.is.
Námskeið eða afþreying · Garðatorg 7, 210 Garðabær
verifiedYfirfarið af Vöggu
Með þeirra eigin orðum
Foreldramorgnar á Bókasafni Garðabæjar á fimmtudagsmorgnum, oftast kl. 10:30, fyrir foreldra með ung börn. Nokkrum sinnum í mánuði er sérstök dagskrá, til dæmis fræðsla eða sögu- og söngstund. Nánari upplýsingar um hvern viðburð eru á Facebook-síðu safnsins.
Ljósmóðir eða heilsuþjónusta · Hlíðarfótur 17, 102 Reykjavík
verifiedYfirfarið af Vöggu
Með þeirra eigin orðum
Fæðingarheimili Reykjavíkur er rekið af ljósmæðrunum Emblu Ýr Guðmundsdóttur og Emmu M Swift og býður upp á þjónustu ljósmæðra á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu, ásamt fræðslu fyrir verðandi foreldra. Í húsnæðinu eru einnig brjóstagjafaráðgjafar, sjúkraþjálfari og sálfræðingur, meðgöngu- og mömmujóga og námskeið, til dæmis um bráð veikindi og endurlífgun ungbarna. Alla þriðjudaga kl. 11:30–13 er „Hittumst í hádeginu“: opin samvera fyrir foreldra og ung börn, ókeypis og engin skráning.
Í boði
Fæðingarfræðsla og brjóstagjöf, Ljósmæður og sjúkraþjálfun, Skyndihjálp ungbarna
Námskeið eða afþreying · Skipholt 50c, 105 Reykjavík
verifiedYfirfarið af Vöggu
Með þeirra eigin orðum
Meðgöngujóga og mömmujóga í Jógasetrinu í Skipholti 50c. Mælt er með að byrja í meðgöngujóga um 14.–16. viku og margar mæta allt fram að fæðingu. Mömmujóga er tvisvar í viku fyrir mæður með börn frá 6–8 vikna aldri og fram að eins árs aldri. Tímar og skráning eru á vef Jógasetursins.
Í boði
Meðgöngu- og mömmuþjálfun
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska
Þjónusta
Mömmujóga – 8 vikna námskeið · 0–1 ársNæsta námskeið hefst 11. janúar 2027: mánudaga og miðvikudaga kl. 10:15. Börn frá 6–8 vikna aldri eru velkomin með.Skrá sig
Skóli eða námskeið · Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður
verifiedYfirfarið af Vöggu
Með þeirra eigin orðum
Móðurafl býður uppá fæðingarþjálfunina Lærðu að fæða, sem er hagnýtt og eflandi námskeið fyrir jákvæða og verkjaminni fæðingarupplifun ekki síst fyrir þá sem stefna á náttúrulegt fæðingarferli. Persónulegt námskeið í litlum hóp eða einkatímum. Móðurafl býður einnig uppá einstaklingsmiðaða fæðingarmarkþjálfunartíma sem og douluþjónustu í gegnum allt fæðingarferlið fyrir þá sem þess óska, með eða án samfylgdar í fæðingunni sjálfri. Eins býður Móðurafl uppá lífsþjálfunina Nýtt upphaf fyrir mæður.
Í boði
Fæðingarfræðsla og brjóstagjöf, Douluþjónusta
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska, Danska, Enska
Tímar á þessu tímabili
Mið. 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Meðganga · 5 pláss · 37.700 kr. · til 31. mar.Námskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Skrá sig
Mið. 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Meðganga · 5 pláss · 37.700 kr. · til 3. mar.Námskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Skrá sig
Mið. 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Meðganga · 5 pláss · 37.700 kr. · til 3. feb.Námskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Skrá sig
Þjónusta
DouluþjónustaDagný Doula styður ykkur á meðgöngu, í fæðingu ef óskað er og eftir. Hún hlustar eftir hverju þið hafið þörf fyrir, veitir fræðslu, stuðning og nærveru. Ýmis bjargráð eru þjálfuð upp og traust og þekking myndast sem veita meira öryggi til að takast á við fæðingarvinnuna og eiga betri líkur á góðri fæðingarupplifun. Oft leita foreldrar stuðnings frá doulu eftir erfiða fæðingarreynslu, vegna kvíða eða skorts á stuðningi eða bara fyrir meira öryggi, þægindi og vellíðan.Skrá sig
Fæðingarmarkþjálfun · 75 mín. · 15.000 kr.Í fæðingarmarkþjálfun skoðum við þínar óskir, væntingar, styrkleika og áskoranir og byggjum undirbúninginn upp út frá þér og þínum þörfum, ekki einhverri fyrirfram ákveðinni uppskrift.
Grunnurinn er samtal, stuðningur og markþjálfun en hver tími endar á fræðslu og þjálfun sem er sniðin að þér, þinni sögu, þínum þörfum og þeirri fæðingu sem þú/þið ert að fara að mæta.
Fæðingarmarkþjálfun er eins konar einkaþjálfun fyrir eitt stærsta verkefni lífsins.Skrá sig
SængurleguþjónustaSem sængurlegudoula býð ég upp á ýmis konar þjónustu sem er sérsniðin að þínum einstöku þörfum í sængurlegunni. Þjónustan getur miðast við aðstoð með nýburann og ýmislegt er tengist því að næra líkama þinn og andlega líðan, stuðning við brjóstagjöf eða læra á nýtt lífsmynstur. Fyrstu vikurnar eftir fæðingu barns geta verið fullar af alls konar áskorunum og geta rúmað allan tilfinningaskalann. Stuðningurinn miðar að því að skapa rými fyrir móðurina til að aðlagast og takast á við nýjar aðstæður.
Lífsþjálfun fyrir mæður · 60 mín. · 12.000 kr.Lífsþjálfun fyrir mæður sem vilja finna sjálfa sig og sína leið. Móðurhlutverkið kallar á miklar breytingar og auðvelt er að týna sjálfum sér, en þú ert enn þú og kannski að verða enn stærri útgáfa af sjálfri þér. Að verða móðir er umbreytandi upplifun en um leið tækifæri til vaxtar og nýrra leiða. Í þjálfunarsamtölunum okkar sköpum við rými fyrir þig. Vellíðan þína og vegferð. Sjálfsmyndina þína. Fyrirmyndina sem þú vilt vera. Draumana þína og framtíðina sem þú vilt skapa þér og lifa.Skrá sig
Námskeið eða afþreying · Suðurlandsbraut 64, 108 Reykjavík
verifiedYfirfarið af Vöggu
Í boði
Ungbarnasund
Fyrir
0–1 árs, 1–2 ára, 2–4 ára
Tungumál
Íslenska
Þjónusta
Ungbarnasund – byrjendanámskeið · 0–1 ársFyrir börn á aldrinum 2–12 mánaða. Næstu námskeið hefjast helgina 16.–17. janúar 2027, í Mörkinni (Suðurlandsbraut 64) og í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Tímasetningar og verð eru í bókunarkerfinu.Skrá sig
Ungbarnasund – framhaldsnámskeið · 0–1 ársFyrir börn á aldrinum 4–14 mánaða sem hafa lokið byrjendanámskeiði. Næstu námskeið hefjast helgina 16.–17. janúar 2027.Skrá sig
Ljósmóðir eða heilsuþjónusta · Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður
verifiedYfirfarið af Vöggu
Með þeirra eigin orðum
Svefnráðgjöf fyrir fjölskyldur með börn frá fæðingu til fjögurra ára. Kristín Björg Flygenring hjúkrunarfræðingur tekur á móti ykkur í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Tímar eru bókaðir á Noona.
Námskeið eða afþreying · Sundlaug Sjálandsskóla, 210 Garðabær
verifiedYfirfarið af Vöggu
Með þeirra eigin orðum
Ungbarnasund fyrir 3 - 12 mánaða kríli. Kennt tvisvar í viku (þriðjudaga og fimmtudaga) í lauginni í Sjálandsskóla í Garðabæ.
Notaleg fjölskyldustund með áherslu á aðlögun í vatni fyrir yngsta krílið❤️
Í boði
Ungbarnasund
Fyrir
0–1 árs
Tungumál
Íslenska
Tímar á þessu tímabili
Þri. 16:30–17:10Byrjendahópur · 0–1 árs · Sjálandsskóli · 21.000 kr. · til 8. des.Skrá barn
Þri. 17:10–17:50Framhaldshópur · 0–1 árs · Sjálandsskóli · 21.000 kr. · til 8. des.Skrá barn
Fim. 16:30–17:10Byrjendahópur · 0–1 árs · Sjálandsskóli · 2.100 kr. · til 28. jan.Skrá barn
Fim. 17:10–17:50Framhaldshópur · 0–1 árs · Sjálandsskóli · 21.000 kr. · til 27. jan.Skrá barn
Námskeið eða afþreying · Laugar, Sundlaugavegur 30a, 105 Reykjavík
verifiedYfirfarið af Vöggu
Með þeirra eigin orðum
Mat Pilates fyrir nýbakaðar mæður, með börnin hjá sér í salnum, og verðandi mæður. Styrkir kvið, grindarbotn og djúpvöðva. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9:30 í World Class Laugum, 50 mínútur. Hægt að byrja hvenær sem er; skráning í tíma í Abler.
Í boði
Meðgöngu- og mömmuþjálfun
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska
Þjónusta
Pilates Mömmur – áskrift · 50 mín.Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9:30 í Laugum. 9.800 kr. á mánuði sem viðbót við World Class-kort, að lágmarki í 3 mánuði. Hægt er að byrja hvenær sem er.Skrá sig
Námskeið eða afþreying · Laugar, Sundlaugavegur 30a, 105 Reykjavík
verifiedYfirfarið af Vöggu
Með þeirra eigin orðum
Þjálfun undir handleiðslu þjálfara fyrir nýbakaðar mæður og börnin þeirra og verðandi mæður: styrktaræfingar og úthaldslotur. Kennt í Laugum, á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði, á Akranesi og á Skólastíg á Akureyri; tímar eftir tímatöflu.
Í boði
Meðgöngu- og mömmuþjálfun
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska
Þjónusta
WorldFit mömmur – áskriftTímar í Laugum, á Tjarnarvöllum, á Akranesi og við Skólastíg á Akureyri; æfing dagsins birtist á tímatöflu kvöldið áður. 9.800 kr. á mánuði sem viðbót við World Class-kort, að lágmarki í 3 mánuði. Hægt er að byrja hvenær sem er.Skrá sig
Við viljum nota Google Analytics og Microsoft Clarity til að sjá hvernig vefurinn er notaður. Með þínu leyfi mælum við líka hvort auglýsingar okkar á Google skili skráningum. Ekkert af þessu er virkt nema þú samþykkir það og við notum þessar upplýsingar aldrei til að sýna þér sérsniðnar auglýsingar. Hvernig við notum vafrakökur