Vagga
ENHefja notkun

Námskeið og þjónusta

Námskeið, skólar, ljósmæður og verslanir fyrir litla fólkið

Staðir fyrir fjölskyldur með ung börn, frá meðgöngu þar til barnið verður fjögurra ára. Síaðu eftir aldri, degi og póstnúmeri og bókaðu á síðu staðarins.

  • Vagga hefur farið yfir hvern stað hér: að hann sé til og að hlekkirnir vísi á hans eigin síðu.
  • Ljósmæður og heilsuþjónusta: við athugum starfsleyfið í starfsleyfaskrá heilbrigðisstarfsmanna.
  • Skráning er ókeypis og enginn staður borgar fyrir betra sæti.

Finna stað

19 staðir

Svefnráðgjöf.is

Ljósmóðir eða heilsuþjónusta · Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður

Yfirfarið af Vöggu

Með þeirra eigin orðum

Svefnráðgjöf fyrir fjölskyldur með börn frá fæðingu til fjögurra ára. Kristín Björg Flygenring hjúkrunarfræðingur tekur á móti ykkur í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Tímar eru bókaðir á Noona.

Í boði
Svefnráðgjöf
Fyrir
0–1 árs, 1–2 ára, 2–4 ára
Tungumál
Íslenska

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

Bráðaskólinn

Skóli eða námskeið · Hlíðarfótur 17, 102 Reykjavík

Yfirfarið af Vöggu
Í boði
Skyndihjálp ungbarna
Næsta námskeið
23. jan. · 13.600 kr.
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska

Á næstunni

  • 23. jan. 10:00–14:00Skyndihjálp og bráð veikindi barna · Fæðingarheimili Reykjavíkur, Hlíðarfæti 17Skrá sig
  • 13. mar. 10:00–14:00Skyndihjálp og bráð veikindi barna · Fæðingarheimili Reykjavíkur, Hlíðarfæti 17Skrá sig
  • 22. maí 10:00–14:00Skyndihjálp og bráð veikindi barna · Fæðingarheimili Reykjavíkur, Hlíðarfæti 17Skrá sig

Þjónusta

  • Skyndihjálp og bráð veikindi barna · 240 mín. · 13.600 kr.Skrá sig

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

Foreldramorgnar – Bókasafn Garðabæjar

Námskeið eða afþreying · Garðatorg 7, 210 Garðabær

Yfirfarið af Vöggu

Með þeirra eigin orðum

Foreldramorgnar á Bókasafni Garðabæjar á fimmtudagsmorgnum, oftast kl. 10:30, fyrir foreldra með ung börn. Nokkrum sinnum í mánuði er sérstök dagskrá, til dæmis fræðsla eða sögu- og söngstund. Nánari upplýsingar um hvern viðburð eru á Facebook-síðu safnsins.

Í boði
Foreldramorgnar
Fyrir
0–1 árs, 1–2 ára
Tungumál
Íslenska
VefsíðaFacebook591 4550Dagsetningar á vef staðarins

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

Fæðingarheimili Reykjavíkur

Ljósmóðir eða heilsuþjónusta · Hlíðarfótur 17, 102 Reykjavík

Yfirfarið af Vöggu

Með þeirra eigin orðum

Fæðingarheimili Reykjavíkur er rekið af ljósmæðrunum Emblu Ýr Guðmundsdóttur og Emmu M Swift og býður upp á þjónustu ljósmæðra á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu, ásamt fræðslu fyrir verðandi foreldra. Í húsnæðinu eru einnig brjóstagjafaráðgjafar, sjúkraþjálfari og sálfræðingur, meðgöngu- og mömmujóga og námskeið, til dæmis um bráð veikindi og endurlífgun ungbarna. Alla þriðjudaga kl. 11:30–13 er „Hittumst í hádeginu“: opin samvera fyrir foreldra og ung börn, ókeypis og engin skráning.

Í boði
Fæðingarfræðsla og brjóstagjöf, Ljósmæður og sjúkraþjálfun, Skyndihjálp ungbarna
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

Jógasetrið

Námskeið eða afþreying · Skipholt 50c, 105 Reykjavík

Yfirfarið af Vöggu

Með þeirra eigin orðum

Meðgöngujóga og mömmujóga í Jógasetrinu í Skipholti 50c. Mælt er með að byrja í meðgöngujóga um 14.–16. viku og margar mæta allt fram að fæðingu. Mömmujóga er tvisvar í viku fyrir mæður með börn frá 6–8 vikna aldri og fram að eins árs aldri. Tímar og skráning eru á vef Jógasetursins.

Í boði
Meðgöngu- og mömmuþjálfun
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska

Þjónusta

  • Mömmujóga – 8 vikna námskeið · 0–1 ársNæsta námskeið hefst 11. janúar 2027: mánudaga og miðvikudaga kl. 10:15. Börn frá 6–8 vikna aldri eru velkomin með.Skrá sig

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

Móðurafl

Skóli eða námskeið · Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður

Yfirfarið af Vöggu
Móðurafl

Með þeirra eigin orðum

Móðurafl býður uppá fæðingarþjálfunina Lærðu að fæða, sem er hagnýtt og eflandi námskeið fyrir jákvæða og verkjaminni fæðingarupplifun ekki síst fyrir þá sem stefna á náttúrulegt fæðingarferli. Persónulegt námskeið í litlum hóp eða einkatímum. Móðurafl býður einnig uppá einstaklingsmiðaða fæðingarmarkþjálfunartíma sem og douluþjónustu í gegnum allt fæðingarferlið fyrir þá sem þess óska, með eða án samfylgdar í fæðingunni sjálfri. Eins býður Móðurafl uppá lífsþjálfunina Nýtt upphaf fyrir mæður.

Í boði
Fæðingarfræðsla og brjóstagjöf, Douluþjónusta
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska, Danska, Enska

Tímar á þessu tímabili

  • Mið. 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Meðganga · 5 pláss · 37.700 kr. · til 31. mar.Námskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Skrá sig
  • Mið. 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Meðganga · 5 pláss · 37.700 kr. · til 3. mar.Námskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Skrá sig
  • Mið. 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Meðganga · 5 pláss · 37.700 kr. · til 3. feb.Námskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Skrá sig

Þjónusta

  • DouluþjónustaDagný Doula styður ykkur á meðgöngu, í fæðingu ef óskað er og eftir. Hún hlustar eftir hverju þið hafið þörf fyrir, veitir fræðslu, stuðning og nærveru. Ýmis bjargráð eru þjálfuð upp og traust og þekking myndast sem veita meira öryggi til að takast á við fæðingarvinnuna og eiga betri líkur á góðri fæðingarupplifun. Oft leita foreldrar stuðnings frá doulu eftir erfiða fæðingarreynslu, vegna kvíða eða skorts á stuðningi eða bara fyrir meira öryggi, þægindi og vellíðan.Skrá sig
  • Fæðingarmarkþjálfun · 75 mín. · 15.000 kr.Í fæðingarmarkþjálfun skoðum við þínar óskir, væntingar, styrkleika og áskoranir og byggjum undirbúninginn upp út frá þér og þínum þörfum, ekki einhverri fyrirfram ákveðinni uppskrift. Grunnurinn er samtal, stuðningur og markþjálfun en hver tími endar á fræðslu og þjálfun sem er sniðin að þér, þinni sögu, þínum þörfum og þeirri fæðingu sem þú/þið ert að fara að mæta. Fæðingarmarkþjálfun er eins konar einkaþjálfun fyrir eitt stærsta verkefni lífsins.Skrá sig
  • SængurleguþjónustaSem sængurlegudoula býð ég upp á ýmis konar þjónustu sem er sérsniðin að þínum einstöku þörfum í sængurlegunni. Þjónustan getur miðast við aðstoð með nýburann og ýmislegt er tengist því að næra líkama þinn og andlega líðan, stuðning við brjóstagjöf eða læra á nýtt lífsmynstur. Fyrstu vikurnar eftir fæðingu barns geta verið fullar af alls konar áskorunum og geta rúmað allan tilfinningaskalann. Stuðningurinn miðar að því að skapa rými fyrir móðurina til að aðlagast og takast á við nýjar aðstæður.
  • Lífsþjálfun fyrir mæður · 60 mín. · 12.000 kr.Lífsþjálfun fyrir mæður sem vilja finna sjálfa sig og sína leið. Móðurhlutverkið kallar á miklar breytingar og auðvelt er að týna sjálfum sér, en þú ert enn þú og kannski að verða enn stærri útgáfa af sjálfri þér. Að verða móðir er umbreytandi upplifun en um leið tækifæri til vaxtar og nýrra leiða. Í þjálfunarsamtölunum okkar sköpum við rými fyrir þig. Vellíðan þína og vegferð. Sjálfsmyndina þína. Fyrirmyndina sem þú vilt vera. Draumana þína og framtíðina sem þú vilt skapa þér og lifa.Skrá sig

Sigma heilsa

Ljósmóðir eða heilsuþjónusta · Urriðaholtsstræti 22, 210 Garðabær

Yfirfarið af Vöggu

Með þeirra eigin orðum

Sjúkraþjálfun og osteópatía fyrir konur á meðgöngu og eftir fæðingu, í Urriðaholti í Garðabæ. Ólafía Helga Jónasdóttir sjúkraþjálfari vinnur einnig innvortis. Unnar Már Unnarsson osteópati vinnur mikið með grindarsvæðið, eingöngu útvortis. Hægt er að panta tíma hjá Ólafíu í síma 583 5550 kl. 8–16 virka daga og hjá Unnari á osteo.is.

Í boði
Ljósmæður og sjúkraþjálfun
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

Sundskóli Hörpu

Námskeið eða afþreying · Suðurlandsbraut 64, 108 Reykjavík

Yfirfarið af Vöggu
Í boði
Ungbarnasund
Fyrir
0–1 árs, 1–2 ára, 2–4 ára
Tungumál
Íslenska

Þjónusta

  • Ungbarnasund – byrjendanámskeið · 0–1 ársFyrir börn á aldrinum 2–12 mánaða. Næstu námskeið hefjast helgina 16.–17. janúar 2027, í Mörkinni (Suðurlandsbraut 64) og í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Tímasetningar og verð eru í bókunarkerfinu.Skrá sig
  • Ungbarnasund – framhaldsnámskeið · 0–1 ársFyrir börn á aldrinum 4–14 mánaða sem hafa lokið byrjendanámskeiði. Næstu námskeið hefjast helgina 16.–17. janúar 2027.Skrá sig

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

Ungbarnasund Bjargar

Námskeið eða afþreying · Sundlaug Sjálandsskóla, 210 Garðabær

Yfirfarið af Vöggu
Ungbarnasund Bjargar

Með þeirra eigin orðum

Ungbarnasund fyrir 3 - 12 mánaða kríli. Kennt tvisvar í viku (þriðjudaga og fimmtudaga) í lauginni í Sjálandsskóla í Garðabæ. Notaleg fjölskyldustund með áherslu á aðlögun í vatni fyrir yngsta krílið❤️

Í boði
Ungbarnasund
Fyrir
0–1 árs
Tungumál
Íslenska

Tímar á þessu tímabili

  • Þri. 16:30–17:10Byrjendahópur · 0–1 árs · Sjálandsskóli · 21.000 kr. · til 8. des.Skrá barn
  • Þri. 17:10–17:50Framhaldshópur · 0–1 árs · Sjálandsskóli · 21.000 kr. · til 8. des.Skrá barn
  • Fim. 16:30–17:10Byrjendahópur · 0–1 árs · Sjálandsskóli · 2.100 kr. · til 28. jan.Skrá barn
  • Fim. 17:10–17:50Framhaldshópur · 0–1 árs · Sjálandsskóli · 21.000 kr. · til 27. jan.Skrá barn

World Class – Pilates Mömmur

Námskeið eða afþreying · Laugar, Sundlaugavegur 30a, 105 Reykjavík

Yfirfarið af Vöggu

Með þeirra eigin orðum

Mat Pilates fyrir nýbakaðar mæður, með börnin hjá sér í salnum, og verðandi mæður. Styrkir kvið, grindarbotn og djúpvöðva. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9:30 í World Class Laugum, 50 mínútur. Hægt að byrja hvenær sem er; skráning í tíma í Abler.

Í boði
Meðgöngu- og mömmuþjálfun
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska

Þjónusta

  • Pilates Mömmur – áskrift · 50 mín.Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9:30 í Laugum. 9.800 kr. á mánuði sem viðbót við World Class-kort, að lágmarki í 3 mánuði. Hægt er að byrja hvenær sem er.Skrá sig

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

World Class – WorldFit mömmur

Námskeið eða afþreying · Laugar, Sundlaugavegur 30a, 105 Reykjavík

Yfirfarið af Vöggu

Með þeirra eigin orðum

Þjálfun undir handleiðslu þjálfara fyrir nýbakaðar mæður og börnin þeirra og verðandi mæður: styrktaræfingar og úthaldslotur. Kennt í Laugum, á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði, á Akranesi og á Skólastíg á Akureyri; tímar eftir tímatöflu.

Í boði
Meðgöngu- og mömmuþjálfun
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska

Þjónusta

  • WorldFit mömmur – áskriftTímar í Laugum, á Tjarnarvöllum, á Akranesi og við Skólastíg á Akureyri; æfing dagsins birtist á tímatöflu kvöldið áður. 9.800 kr. á mánuði sem viðbót við World Class-kort, að lágmarki í 3 mánuði. Hægt er að byrja hvenær sem er.Skrá sig

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

Yogaljós

Námskeið eða afþreying · Hlíðarfótur 17, 102 Reykjavík

Yfirfarið af Vöggu

Með þeirra eigin orðum

Meðgöngujóga, Mömmujóga og Paranámskeið til undirbúnings fyrir fæðingu.

Í boði
Meðgöngu- og mömmuþjálfun, Fæðingarfræðsla og brjóstagjöf
Næsta námskeið
4. jan. · 25.000 kr.
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska, Enska

Á næstunni

  • 4. jan. 12:00–13:15Jóga og fræðsla með HölluMánudaga og fimmtudaga í 4 vikurSkrá sig
  • 4. jan. 17:00–18:15Jóga og fræðsla með HölluMánudaga og fimmtudaga í 4 vikurSkrá sig

Þjónusta

  • Jóga og fræðsla með Höllu · 75 mín. · 25.000 kr.4 vikur, mánudaga og fimmtudaga, 4.–28. janúar 2027. Halla Björg Lárusdóttir ljósmóðir kennir.Skrá sig

Er þetta þinn staður? Taktu við skráningunni

Ertu að leita að barnapíu eða dagforeldri? Þau eru með sinn eigin lista.

Ertu að leita að ljósmóður? Ljósmæður og sérfræðingar

Rekur þú námskeið, skóla, stofu eða verslun?

Skráðu staðinn á Vöggu ókeypis. Við förum yfir skráninguna, fjölskyldur finna hana og bóka beint hjá þér á þinni síðu.

Skráðu þína þjónustu