Vagga
ENHefja notkun

Námskeið og þjónusta

Douluþjónusta á Íslandi

Doulur styðja foreldra á meðgöngu, í fæðingu og fyrstu vikurnar á eftir, með fræðslu, nærveru og ráðum. Doula er ekki heilbrigðisstétt með starfsleyfi og kemur ekki í stað ljósmóður.

  • Vagga hefur farið yfir hvern stað hér: að hann sé til og að hlekkirnir vísi á hans eigin síðu.
  • Ljósmæður og heilsuþjónusta: við athugum starfsleyfið í starfsleyfaskrá heilbrigðisstarfsmanna.
  • Skráning er ókeypis og enginn staður borgar fyrir betra sæti.

Staðir — Douluþjónusta

1 staður

Móðurafl

Skóli eða námskeið · Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður

Yfirfarið af Vöggu
Móðurafl

Með þeirra eigin orðum

Móðurafl býður uppá fæðingarþjálfunina Lærðu að fæða, sem er hagnýtt og eflandi námskeið fyrir jákvæða og verkjaminni fæðingarupplifun ekki síst fyrir þá sem stefna á náttúrulegt fæðingarferli. Persónulegt námskeið í litlum hóp eða einkatímum. Móðurafl býður einnig uppá einstaklingsmiðaða fæðingarmarkþjálfunartíma sem og douluþjónustu í gegnum allt fæðingarferlið fyrir þá sem þess óska, með eða án samfylgdar í fæðingunni sjálfri. Eins býður Móðurafl uppá lífsþjálfunina Nýtt upphaf fyrir mæður.

Í boði
Fæðingarfræðsla og brjóstagjöf, Douluþjónusta
Fyrir
Meðganga, 0–1 árs
Tungumál
Íslenska, Danska, Enska

Tímar á þessu tímabili

  • Mið. 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Meðganga · 5 pláss · 37.700 kr. · til 31. mar.Námskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Skrá sig
  • Mið. 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Meðganga · 5 pláss · 37.700 kr. · til 3. mar.Námskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Skrá sig
  • Mið. 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Meðganga · 5 pláss · 37.700 kr. · til 3. feb.Námskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Skrá sig

Þjónusta

  • DouluþjónustaDagný Doula styður ykkur á meðgöngu, í fæðingu ef óskað er og eftir. Hún hlustar eftir hverju þið hafið þörf fyrir, veitir fræðslu, stuðning og nærveru. Ýmis bjargráð eru þjálfuð upp og traust og þekking myndast sem veita meira öryggi til að takast á við fæðingarvinnuna og eiga betri líkur á góðri fæðingarupplifun. Oft leita foreldrar stuðnings frá doulu eftir erfiða fæðingarreynslu, vegna kvíða eða skorts á stuðningi eða bara fyrir meira öryggi, þægindi og vellíðan.Skrá sig
  • Fæðingarmarkþjálfun · 75 mín. · 15.000 kr.Í fæðingarmarkþjálfun skoðum við þínar óskir, væntingar, styrkleika og áskoranir og byggjum undirbúninginn upp út frá þér og þínum þörfum, ekki einhverri fyrirfram ákveðinni uppskrift. Grunnurinn er samtal, stuðningur og markþjálfun en hver tími endar á fræðslu og þjálfun sem er sniðin að þér, þinni sögu, þínum þörfum og þeirri fæðingu sem þú/þið ert að fara að mæta. Fæðingarmarkþjálfun er eins konar einkaþjálfun fyrir eitt stærsta verkefni lífsins.Skrá sig
  • SængurleguþjónustaSem sængurlegudoula býð ég upp á ýmis konar þjónustu sem er sérsniðin að þínum einstöku þörfum í sængurlegunni. Þjónustan getur miðast við aðstoð með nýburann og ýmislegt er tengist því að næra líkama þinn og andlega líðan, stuðning við brjóstagjöf eða læra á nýtt lífsmynstur. Fyrstu vikurnar eftir fæðingu barns geta verið fullar af alls konar áskorunum og geta rúmað allan tilfinningaskalann. Stuðningurinn miðar að því að skapa rými fyrir móðurina til að aðlagast og takast á við nýjar aðstæður.
  • Lífsþjálfun fyrir mæður · 60 mín. · 12.000 kr.Lífsþjálfun fyrir mæður sem vilja finna sjálfa sig og sína leið. Móðurhlutverkið kallar á miklar breytingar og auðvelt er að týna sjálfum sér, en þú ert enn þú og kannski að verða enn stærri útgáfa af sjálfri þér. Að verða móðir er umbreytandi upplifun en um leið tækifæri til vaxtar og nýrra leiða. Í þjálfunarsamtölunum okkar sköpum við rými fyrir þig. Vellíðan þína og vegferð. Sjálfsmyndina þína. Fyrirmyndina sem þú vilt vera. Draumana þína og framtíðina sem þú vilt skapa þér og lifa.Skrá sig

Ertu að leita að barnapíu eða dagforeldri? Þau eru með sinn eigin lista.

Ertu að leita að ljósmóður? Ljósmæður og sérfræðingar

Rekur þú námskeið, skóla, stofu eða verslun?

Skráðu staðinn á Vöggu ókeypis. Við förum yfir skráninguna, fjölskyldur finna hana og bóka beint hjá þér á þinni síðu.

Skráðu þína þjónustu