Móðurafl
School or course · Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður

In their own words
Móðurafl býður uppá fæðingarþjálfunina Lærðu að fæða, sem er hagnýtt og eflandi námskeið fyrir jákvæða og verkjaminni fæðingarupplifun ekki síst fyrir þá sem stefna á náttúrulegt fæðingarferli. Persónulegt námskeið í litlum hóp eða einkatímum. Móðurafl býður einnig uppá einstaklingsmiðaða fæðingarmarkþjálfunartíma sem og douluþjónustu í gegnum allt fæðingarferlið fyrir þá sem þess óska, með eða án samfylgdar í fæðingunni sjálfri. Eins býður Móðurafl uppá lífsþjálfunina Nýtt upphaf fyrir mæður.
- Offers
- Birth preparation and breastfeeding, Doula support
- For
- Pregnancy, 0–1 year
- Languages
- Icelandic, Danish, English
Classes this term
- Wed 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Pregnancy · 5 places · 37,700 kr. · until 3 MarNámskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Sign up
- Wed 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Pregnancy · 5 places · 37,700 kr. · until 31 MarNámskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Sign up
- Wed 17:30–20:30Fæðingarþjálfunin Lærðu að fæða · Pregnancy · 5 places · 37,700 kr. · until 3 FebNámskeiðið er 2 kvöld í litlum hóp þar sem hægt er að styðja hvern og einn betur og þáttakendur læra og æfa bjargráðin sín. Þátttakendur geta kannað greiðsluþátttöku stéttarfélaga fyrir námskeiðinu.Sign up
Services
- DouluþjónustaDagný Doula styður ykkur á meðgöngu, í fæðingu ef óskað er og eftir. Hún hlustar eftir hverju þið hafið þörf fyrir, veitir fræðslu, stuðning og nærveru. Ýmis bjargráð eru þjálfuð upp og traust og þekking myndast sem veita meira öryggi til að takast á við fæðingarvinnuna og eiga betri líkur á góðri fæðingarupplifun. Oft leita foreldrar stuðnings frá doulu eftir erfiða fæðingarreynslu, vegna kvíða eða skorts á stuðningi eða bara fyrir meira öryggi, þægindi og vellíðan.Sign up
- Fæðingarmarkþjálfun · 75 min · 15,000 kr.Í fæðingarmarkþjálfun skoðum við þínar óskir, væntingar, styrkleika og áskoranir og byggjum undirbúninginn upp út frá þér og þínum þörfum, ekki einhverri fyrirfram ákveðinni uppskrift. Grunnurinn er samtal, stuðningur og markþjálfun en hver tími endar á fræðslu og þjálfun sem er sniðin að þér, þinni sögu, þínum þörfum og þeirri fæðingu sem þú/þið ert að fara að mæta. Fæðingarmarkþjálfun er eins konar einkaþjálfun fyrir eitt stærsta verkefni lífsins.Sign up
- SængurleguþjónustaSem sængurlegudoula býð ég upp á ýmis konar þjónustu sem er sérsniðin að þínum einstöku þörfum í sængurlegunni. Þjónustan getur miðast við aðstoð með nýburann og ýmislegt er tengist því að næra líkama þinn og andlega líðan, stuðning við brjóstagjöf eða læra á nýtt lífsmynstur. Fyrstu vikurnar eftir fæðingu barns geta verið fullar af alls konar áskorunum og geta rúmað allan tilfinningaskalann. Stuðningurinn miðar að því að skapa rými fyrir móðurina til að aðlagast og takast á við nýjar aðstæður.
- Lífsþjálfun fyrir mæður · 60 min · 12,000 kr.Lífsþjálfun fyrir mæður sem vilja finna sjálfa sig og sína leið. Móðurhlutverkið kallar á miklar breytingar og auðvelt er að týna sjálfum sér, en þú ert enn þú og kannski að verða enn stærri útgáfa af sjálfri þér. Að verða móðir er umbreytandi upplifun en um leið tækifæri til vaxtar og nýrra leiða. Í þjálfunarsamtölunum okkar sköpum við rými fyrir þig. Vellíðan þína og vegferð. Sjálfsmyndina þína. Fyrirmyndina sem þú vilt vera. Draumana þína og framtíðina sem þú vilt skapa þér og lifa.Sign up